Monday, March 02, 2009

Það hlaut að koma að því

Já við erum búin að vera svo lánsöm og ánægð með hvernig allt hefur gengið upp hjá okkur undanfarið, að það var kominn tími á smá óheppni. Maður getur ekki verið heppinn alveg stöðugt, er það? Það er sem sagt verið að úthluta turnus númerum, fyrir kandídatsárið okkar, og við fengum nr.343 af 368 númerum. Þetta þýðir að við getum í besta falli fengið stöðu í 1,5klst keyrslu frá Odense, eða við verðum að flytja. Það kemur þó endanlega í ljós í apríl, þegar við veljum stöðu. Við sem vorum svo innilega að vona að við gætum verið áfram í Odense og að Kristina gæti klárað hjá dagmömmunni sinni áður en hún byrjar á leikskóla 3ja ára. Auk þess sem við þekkjum ENGAN í Esbjerg eða Sönderborg eða Hjörring, eða hvar sem við nú lendum. Fólk lifir þetta af, en þetta er engin óskastaða.
Annars gengur vinnan bara vel. Mér finnst ég vera ansi mikið á kvöld-næturvöktum þessa dagana, en það hittir bara svona á í bili. Ég er að vinna á stærstu taugadeild í Danmörku, og á nóttunni og um helgar er ég eini læknirinn með tvær 20 sjúklinga deildar með tilheyrandi snatti, auk forvaktarfunktionar. Og bakvaktin er bara með símavakt, er ekki í húsinu. Þannig að það er ekki mikið um svefn, mesta lagi 1-2klst á 17 tíma vakt, ef ég er heppin. Þetta eru viðbrigði, en það hefur allt gengið hingað til. Jákup er líka mjög sáttur á sinni litlu deild, með mun rólegri vaktir en ég, auk þess sem hann þarf ekki að taka næturvaktir, því bakvaktin sinnir því.
Kristina talar meira og meira og er voða góð að sofa þessa dagana eftir smá tímabil með eyrnabólgur og órólegheit eftir flutninga og annað. Hún er mikið að velta því fyrir sér þessa dagana hvort maður kúki og pissi í bleyju eða kopp, og við erum búin að reyna nokkra daga að taka af henni bleyjuna. En ég held að hún sé ekki alveg tilbúin, það var eins og hún reyndi að halda í sér þangað til við sáum ekki til, og pissaði svo í buxurnar. Hún vill gjarnan setjast á koppinn, en það er sjaldnast að það komi eitthvað í hann. En hann er spennandi, kannski kemur þetta fljótlega. Hún sagði mér samt um daginn að hún væri ekki stór, hún væri baby, og að hún pissaði þess vegna í bleyju. Caput :)

4 Comments:

At 3:39 PM, Anonymous Anonymous said...

Bara kvitta fyrir innlitið,alltaf gaman að lesa bloggið þitt.

Knús frá Íslandi

Þóra Kolla

 
At 3:28 AM, Blogger herborg said...

Sönderborg er nú við landamærin þannig að það er einhver kostur:) hehehe........

Þetta eru annars svakalegar vaktir!

 
At 3:32 AM, Blogger herborg said...

hvernig væri svo að breyta undirtitlinum á blogginu?? ertu nokkuð stúdína??

 
At 7:41 AM, Blogger Ásta said...

Takk fyrir það Þóra Kolla;)

Búin að redda þessu Herborg! hehe
Við vorum einmitt búin að sjá þann kost, einnig við Aabenraa, þá skreppum við bara í helgarferðir suður:)

 

Post a Comment

<< Home