Sunday, December 02, 2007

Sunnudagur í dýragarðinum

Kristina fín með Hogwarts trefil!:)

Að renna niður rennibraut


Mamman crazy á svip


Halló!


Við áttum góðan dag saman í dag. Við Kristina vöknuðum aldrei þessu vant kl.8 í morgun (hún vaknar venjulega um 6 leytið) eftir nótt með mikinn hita. Hún var hins vegar eldhress þegar hún vaknaði og við lékum okkur því hér heima þangað til Jákup kom heim úr vinnunni. Ég smurði nesti fyrir okkur þrjú, og svo drifum við okkur í dýragarðinn. Við sáum fullt af dýrum, og lékum okkur á leikvellinum. Kristina var ekkert hrifin af rólunni, og vildi bara láta taka sig aftur! Hún var aðeins hrifnari af rennibrautinni. Skemmtilegast var samt að skoða risaskjaldbökurnar og litlu geiturnar. Svo sofnaði hún eftir að við borðuðum nestið og við löbbuðum heim og gáfum hverju öðru aðventugjafir. Ég fékk nýjan usb lykil sem mig vantaði mjög svo, Jákup fékk myndina Blood diamond og Kristina fékk lítið vélmenni sem labbar. Já, pabbinn valdi þessa strákagjöf, hehehe! Loksins gátum við svo kveikt á fyrsta kertinu á aðventukransinum sem ég bjó til í fyrsta skipti! Við erum líka búin að sækja jólaskrautið og ætlum að fara að skreyta fljótlega.

Seinnipartinn fórum við í hjólaferð heim til Marianna og fengum köku og kók. Kristina var alveg að sofna á hjólinu, hausinn dinglaði fram og aftur á meðan hún barðist við að halda sér vakandi;) Svo drifum við okkur heim að elda kvöldmat og hátta litlu músina.

4 Comments:

At 9:52 PM, Blogger Halldís said...

ohh þið eruð svo sæt fjölskylda!

 
At 3:06 PM, Anonymous Anonymous said...

Ji hvað þetta hefur verið æðislegur dagur!
Kristina er bara sæt með þennan trefil:)
Er hún litla nebbalína, en jafn ánægð með fínu dúkkuna sína?

 
At 5:39 PM, Blogger Ásta said...

Við erum svo agalega sæt!;)
Já, hún er alsæl með dúkkuna sína!

 
At 9:24 AM, Anonymous Anonymous said...

Flottar myndir :) Og nokkrar nýjar færslur víííí...

En huggulegt að gefa hvert öðru aðventugjafir ;) HEHE greinilega ekki langt í að tilraun verður gerð við að eignast strákinn miðað við gjöfina hennar Kristinu HAHAHAHA... (þ.e ef Jákup fær að ráða einhverju!!)

Hafið það gott á aðventunni og alla aðra daga.
Kv Helga Dröfn

 

Post a Comment

<< Home