Gledileg jól!
Thá er bara komið að thví. Jólin eru komin. Ég verð nú að viðurkenna að ég hef aldrei verið í eins litlu jólaskapi eins og ég er thessa dagana, enda svolítid erfitt thegar fjølskyldan er langt í burtu. Jólastemningin hérna heima hjá tengdó er heldur ekki alveg að gera sig... Litla kartaflan er heldur ekki farin að átta sig á thví um hvað thetta snýst allt saman. Hún fékk að opna einn pakka í morgun, thví okkur vantaði eitthvað fyrir hana ad leika sér með. Hún verður hvort eð er sofnuð í kvøld thegar pakkarnir verða opnaðir, og fær ad opna á morgun í staðinn. Annars er hún búin að vera dugleg í tiltektinni hérna hjá ømmu sinni og afa, hún er búin að róta vel og vandlega í gegnum allar skúffur og skápa og breyta øllum stillingum á útvarpi og magnara. Svo ætlaði hún að byrja á dvd spilaranum en pabbi hennar stoppaði hana. Við erum vøknuð á milli kl.5 og 6, en restin af fjølskyldunni sefur til hádegis og er svo vakandi alla nóttina. Thau eru sum sé B manneskjur. Skemmtilegt alveg hreint.Thað hefur verið stormur hérna í Færeyjum síðan við komum og fluglendingin var ansi upplífgandi. Annie lenti klst á eftir okkur, og thá var veðrið orðið ennthá verra, og fólk grét og øskraði í hennar vél. Thad var ekki alveg svo slæmt hjá okkur, thótt Jákup hafi verið farinn að svitna:) Kristina svaf thetta hins vegar allt af sér! Enda vøknuðum við kl.4 til thess að fara upp á vøll. Kristina skildi ekkert í thví að mamma hennar og pabbi væru vøknuð á undan henni á thessum ókristilega tíma. Venjulega á hún einkarétt á svona framkomu:)
Ein leiðinleg jól eftir með próflestri fyrir embættispróf og svo er ég komin heim til Íslands! Mikið hlakka ég til:-D Thangað til.....gleðileg jól lesendur góðir!

4 Comments:
jákvæð og skemmtileg jólafærsla:) heehe
Já finnst thér ekki?:-D
Hafið það ofsalega gott þrátt fyrir fjarlægðina - þetta er jú hinn hluti fjölskyldunnar þinnar.. :)
Knúsar yfir hafið. HD&Lalli
Gleðileg jól fjölskylda!
Mikið er ég samt sammála þér. Minnsta jólaskap áratugarins hérna megin og orsakast það af ritgerðarskrifum á milli jólaboða - ojbjakk!
Nú er bara að klára þetta helvette og fleygja stílabókinni út í hafsauga fyrir eilífð! Vúhú! Aldrei aftur í skóla (a.m.k. þangað til annað kemur í ljós).
Risaknús og xxx,
Sigrún
Post a Comment
<< Home