Thursday, October 18, 2007

Iceland here we come



Við sitjum hérna í morgunrökkvinu mæðgurnar, nývaknaðar og búnar að borða hafragrautinn okkar. Pabbi borðaði með okkur graut áður en hann lagði af stað í köfunarferð í Rauðahafið með Michael vini sínum. Hann er búinn að vera hjá okkur í tvo daga, kálaði á sér bakinu á gestadýnunni okkar og eldaði fyrir okkur dýrindis nautasteik í gær. Næst sjáum við hann í janúar:( Þá verðum við vonandi búin að kaupa okkur nýtt rúm, þannig að gamla rúmið getur verið í gestaherberginu. Planið er að demba sér í rúmleit þegar við komum frá Íslandi. Spurningin er bara hvort við eigum að fá okkur venjulegt rúm eða fjarstýtt með elevation??


Ég fann gamla unglingabók sem var í miklu uppáhaldi hjá mér í gamla daga og las hana á einu kvöldi á sunnudaginn. Þvílík nostalgía!:D Bókin heitir *Ég get séð um mig sjálf* eftir *Liz Berry*. Man einhver eftir henni?


Alla veganna, við eigum eftir að pakka, en við leggjum af stað til Köben um hádegið. Við eigum ekki flug fyrr en í kvöld, en ætlum að hitta Annie fyrst. Hún er farin að sakna litla ólátabelgsins.
Endilega látið vita ef þið hafið tíma og viljið hitta okkur næstu vikuna!

7 Comments:

At 12:08 AM, Blogger herborg said...

me me me me..........!!

og hérna, ég rakst á Dagmar um daginn og við töluðum um að það væri gaman að hittast 4X skvísurnar:)

 
At 12:12 PM, Anonymous Anonymous said...

Hæ hæ og góða ferð heim :)

Væri að sjálfsögðu gaman að hitta ykkur, getum kannski sameinað krafta okkar hjá einhverjum eða með einhverjum. Get trúað því að þið séuð þreytt og hafið nóg að gera samt!!

Kv Helga Dröfn og Lárus

 
At 12:54 PM, Blogger Unknown said...

Hafðu endilega samband ef þið hafið tíma í smá hitting.
Njóttu þess í botn að vera í smá fríi, þú átt það sko skilið!

 
At 9:25 PM, Anonymous Anonymous said...

Ég las þessa bók líka þegar ég var "ung" var einmitt ein af uppáhalds bókunum, er einhvers staðar í kassa á íslandi. Góða skemmtun á Íslandi, væri svo til í að kíkja þangað líka.

 
At 1:24 PM, Blogger Ásta said...

Herborg: Ég hringi í þig í dag:)

HD: Vonandi sjáumst við heima hjá Kaju í dag!

Fjóla: Takk fyrir það, við reynum að slaka á eins og hægt er! Það er bara svo margt sem mann langar að gera:) Ég hef samband í vikunni ef tími gefst!

Heiðdís: Takk fyrir það!

 
At 3:04 PM, Blogger Sigrún Ósk said...

Man ég eftir Ég-get-séð-um-mig-sjálf?

Ég er nú skítlogandi hrædd um það. Þetta var ekki nema uppáhaldsbókin mín og ég las framhaldið líka og alles.

Held ég hafi tekið hana sjö sinnum á bókasafninu! Án gríns. Man meira að segja nokkurn veginn hvernig hún er enn þann dag í dag! Væri gaman að renna í gegnum hana við tækifæri ;)

 
At 4:08 PM, Blogger Ásta said...

Þetta var einmitt mjög skemmtilegur lestur! Ekkert síðri en fyrir 10 árum síðan;) Og ég mundi einmitt eiginlega alveg innihaldið. Og las framhaldið í denn:)

 

Post a Comment

<< Home