
Við vorum að panta okkur nýtt rúm, með heilsudýnum! Það kemur á þriðjudaginn. Ég get ekki beðið:) Rúmið okkar er 1,40m, en það nýja er 1,80m. Það verður sko munur þegar litla kartaflan sefur uppí (sem hún gerir nánast allar nætur).
Gamla rúmið fer í gestaherbergið. Vill einhver koma í heimsókn?:)
6 Comments:
Oh hvað ég öfunda ykkur, okkar rúm er ekki nema 1,20! Er alveg farin að dreyma um nýtt rúm. Vorum einmitt að tala um þetta um helgina en þá þurfum við eiginlega að flytja, verður of þröngt í svefnherberginu með stærra rúm. Svo það yrði ný íbúð og nýtt rúm, spurning hvort maður nenni að flytja...
mig langar líka í nýtt rúm:)
Prufukeyrsla í nýja rúminu í kvöld! Shit hvað það er stórt!:)
og hvernig var? gátuði sofið á nýja rúminu? :)
Nýja rúmið er algjör draumur!:)
Nú eigum við sitt hverja hliðina, því dýnurnar eru misharðar.
Og við finnum töluvert minna fyrir því að Kristina er uppí, það er mun meira pláss! Ætli við byrjum ekki aftur að kvarta undan plássleysi þegar hún er búin að stækka um þessa cm sem munar á rúmunum;) hehe
oh hvað ég öfunda ykkur! Okkur langar svo í nýtt rúm, eigum queen size með of mjúkri dýnu, en langar í stærra með bakvænni dýnu. við eigum einmitt líka lítinn grís sem sefur nánast alltaf uppí;)
Post a Comment
<< Home