Getiði...
..hver er orðin kvefuð!
Allar ágiskanir réttar -við báðar mæðgurnar.
En stórfrétt dagsins er að við erum búin að klára íbúðina og að Kristina er komin til dagmömmunnar! Ég efast þó ekki um að greyið hefði haft gott af því að vera heima einn dag í viðbót í mömmufangi, en það var enginn tími í slíkan lúxus. Af stað kl.7.30 í morgun, skila KÓ, klára að fínpússa málningu og þvo glugga og gólf. Skóli kl.12.
Ég er heima í nýju íbúðinni í fyrsta sinn ein, því ég er að bíða eftir tæknimanni frá símanum, sem ætlar að skoða það af hverju síminn okkar virkar ekki. J nær í Kristinu á meðan og svo fer hann að skila lyklunum að gömlu íbúðinni. Ég kann auðvitað ekkert að slaka á ein heima, heldur hleyp ég um eins og berserkur og reyni að taka til -það er sko þörf á því!:) Það varð þó að koma ein færsla um þessi sögulegu tímamót í lífi okkar. Ég ætla aldrei að flytja aftur!!! (lesist næsta eitt og hálfa árið, og næstu flutningar verða í okkar eigin íbúð, ekki leigu;)) Ég held að allt þetta stress hafi brotið niður alla mótstöðu í líkamanum á okkur, við grípum hvern vírusinn á fætur öðrum með opnum örmum.

3 Comments:
Úfff, hvað ég vorkenndi þér þegar ég sá síðustu færslu. Ojbaraullabjakk.
Gott að þið eruð orðin hressari þótt það sé hundleiðinlegt að vera með kvef líka.
Hlakka til að koma í heimsókn í nýju íbúðina :)
anytime:)
Já ég mæli ekki með þessari reynslu!
Það á ekki af ykkur að ganga!
Nú eigið þið nú skilið langa veikindapásu.
vona að þið séuð orðnar hressar af kvefinu
Post a Comment
<< Home