Fyrsti skóladagurinn!
Jei! Bara til kl.17!:S
Búin að hjóla með Kristinu í gæstehuset (dagmamman er í fríi), er alveg dauð eftir það, greinilega ekki verið nógu dugleg að hlaupa undanfarið! Er bara rétt að sækja skólatöskuna mína eins og þið sjáið, og svo bruna ég af stað aftur;) Svo eftir skóla förum við og skrifum undir leigusamning, tatatata! Meira um það seinna meir. Og svo þarf að ná í kassa og byrja að pakka, við flytjum í vikunni.... Gott að ég eldaði kvöldmat fyrir kvöldið í gær, fröken skipulögð;-)

2 Comments:
Eruði semsagt búin að finna íbúð? Hlakka til að heyra meiri fréttir :)
og já, þú ert duglegri en ég, í dag vorum við Teddi heima því hann er lasinn og við höfum ekki gert handtak. Bara legið og spjallað og lesið og svo lögðum við okkur saman í 3(!) tíma. Verst hvað maður verður soðinn í hausnum af að leggja sig svona lengi á daginn :Þ
Jamm!
3 tíma?? Jahérna hér! Við erum dauðþreytt eftir daginn, erum búin að vera að allan daginn og erum núna að pakka;)
Post a Comment
<< Home