Ég sat á biðstofunni hjá lækninum á mánudaginn og las viðtal við danska leikkonu sem hefur í frítíma sínum síðustu tvö árin menntað sig sem personlig coach. Hún vinnur við það núna að leiðbeina öðrum með hina ýmsu þætti lífsins, hvernig hægt er að breyta lífi sínu til hins betra. M.a. talaði hún um að eitt af því fyrsta sem þau þurftu að gera í náminu var að hugsa um nokkra litla hluti í hinu daglega lífi sem pirraði þau daglega og þau eyddu neikvæðri orku í, og reyna að breyta því í eitthvað jákvætt. Hún tók sem dæmi hjólalás sem var hálfryðgaður og pirraði hana í hvert sinn sem hún reyndi að opna hann. Hún tók sig því til og lagaði hann og gat því á hverjum degi glaðst smávegis yfir því að lásinn virkaði fullkomlega í stað þess að verða pirruð.
Ég tók þetta til mín í dag og fann fram leiðbeiningarnar að símanum mínum, og komst að því hvernig ég get fengið kommur og ð og slíkt þegar ég skrifa sms:-). Ég er búin að pirrast á því að geta það ekki síðan ég fékk símann í desember, en hef ekki hunsast til þess að komast að því fyrr en nú! Ég tek það fram að þetta er í fyrsta sinn sem ég á motorola síma;) Nú er ég ægilega ánægð með mig, hehe.
Einnig get ég grobbað mig af því að ég er búin að vera í aðhaldi (eða breyttu líferni:) í viku og hef staðist hinar ýmsu freistingar alla vikuna. Ég hef ekki borðað neitt nammi eða kökur og hef verið dugleg að hreyfa mig og afraksturinn er 1kg enn sem komið er:) Ég var meira að segja í mæðragrúppu í dag þar sem í boði voru kökur og súkkulaði, en ég dró bara fram mandarínu og borðaði hana hin sáttasta. Leiðinlegur gestur!!:-) Ég nýt þess að vera í aðhaldi með barn á brjósti! Það eina sem ég þarf að gera er að sleppa þessum óhollu aukamáltíðum og hreyfa mig, og þá virkar það. Ég borða annars allan mat og er með matarlyst á við karlmann. Best að njóta þess og nýta það meðan hægt er;-)
Kristina er farin að sofa á milli 19 og 20 á kvöldin. Það er hitt aðhaldið á heimilinu. Hún er bara svæfð, og ef hún vaknar þá er hún svæfð aftur. Það er draumur í dós að vera með úthvílt barn OG fá smá tíma fyrir sjálfan sig á kvöldin. Það þýðir þó að hún vaknar ca klst fyrr á morgnana en hún gerði áður, en ég fer sjálf fyrr að sofa líka, þannig að það er allt í lagi.


4 Comments:
megasætar mæðgur :)
Sæt mynd!
Þetta er meiriháttar gott ráð, núna þarf ég að reyna að muna eftir einhverju sem er að ergja mig svo ég geti lagað það og liðið betur! :D
Virkar samt ekki alveg þegar helsta ergelsið er vefjagigt. :(
Þetta var frá mér, by the way.
Dóris
Hehehe, gat nú reiknað það út:)
Post a Comment
<< Home