Eins og ég skrifa á barnalandi, ákvað litla frökenin að gera mömmu sinni til geðs og breytti svefnrútínunni snarlega í gær. Svaf frá 19 til 08 takk fyrir. Krossa fingur fyrir því að þetta séu nýir tímar. Ekki slæmt að hafa kvöldið fyrir sjálfan sig til þess að lesa bækur og þvo þvott:)
Fór í fyrsta skokktúr ársins í dag! Mjög stolt af mér, enda gekk vonum framar:)
Og svo elduðum við Jákup íslenskt lambalæri í fyrsta sinn á sunnudaginn og það var svo gott.....mmmmm!

3 Comments:
úúú njóttu þess bara - ekki víst að það vari að eilífu :)
Kv Helga Dröfn
Usss, hún hætti við þessa fínu rútínu í gær:)
hehe já, það er víst þannig fyrsta árið að um leið og það er komin nógu mikil rútína til að maður geti orðað hana þá breytist hún :Þ eða það var amk þannig hjá okkur :)
Post a Comment
<< Home