Wednesday, July 05, 2006

Litla barnið sparkaði í maganum hennar mömmu sinnar í fyrsta skipti í gær:-) Mikil stund -eflaust þangað til það sparkar svo mikið að maður getur ekki sofið eftir nokkra mánuði;) hehe

Annars erum við bæði byrjuð að vinna og líkar vel. Jákup æfir sig á íslenskunni allan daginn og stendur sig eins og hetja. Ég spila bara cool og þykist vita eitthvað í minn haus!
Við erum búin að fara tvisvar í sund á þremur dögum, kallinn er alveg óður. Best að fara bara með honum og synda, það er svo gott að hreyfa sig svolítið. Við erum ekki enn búin að elda neitt sjálf, erum búin að borða á okkur gat af góðum mat hjá mömmu og pabba. Íbúðin er hins vegar rosa fín og hugguleg og við höfum það rosalega gott. Við erum að vinna sömu helgar í a.m.k. júlí en erum auðvitað eitthvað á skjön annars. Ég er t.d. á vakt núna á meðan Jákup er í fríi. Hann er að byrja að rata í Reykjavík, eða það vona ég, því hann á að sækja mig á Klepp kl.8 í fyrramálið:-)

Og fyrir danina: (ef einhver er að lesa)

Vi har det rigtig godt og er begyndt at arbejde begge to. Jákup er flittig og snakker islandsk dagen lang. Jeg lader som om jeg ved noget paa arbejde og spiller cool;)
Jeg mærkede babyen sparke for förste gang i gaar og blev helt maallös:)
Vi har været ude at svömme to gange paa tre dage, det er saa skönt! J er jo ikke til at stoppe, han vil helst ikke tage bad derhjemme, det eneste der duer er svömmehallen...

4 Comments:

At 6:47 PM, Anonymous Anonymous said...

þýðir ekki annað en að sparka svona í tilefni HM!!! Voruð þið nokkuð að horfa á leikinn, híhí. kv heiðdís

 
At 11:25 PM, Blogger Ásta said...

Haha, pabbinn vill örugglega halda að það hafi verið tilefnið;)
Öfunda þig mikið yfir góða veðrinu! Rigningin er ríkjandi hérna í RVK:(
Hafðu það gott í DK!

 
At 10:40 AM, Anonymous Anonymous said...

Til lykke med sparkið, (þetta er fyrir danina sko.. ;)

 
At 10:42 AM, Anonymous Anonymous said...

... asdis

 

Post a Comment

<< Home