Nýjar myndir
20 vikna sónar:
Hér er hún meira að segja að sparka hressilega:)

Ein spúkí mynd:


Þetta er sem sagt lítil prinsessa! Og við erum auðvitað afar ánægð með það:) Ég var vissulega búin að halda því fram í byrjun að ég vildi helst stelpu, en þegar leið á, fann ég það að mér var að sjálfsögðu alveg sama. En það er gaman að tengja þetta litla kríli einhverjum meira áþreifanlegum væntingum núna þegar við vitum það.
Við erum mjög ánægð í "sumarfríinu" okkar, það er gaman og krefjandi í vinnunni og svo hittum við fjölskylduna við hvert tækifæri þess á milli. Ég er búin að fá lánað hjól frá Siggu frænku og hjóla í vinnuna suma daga. Ég hef gott af smá hreyfingu, enda læðast kílóin á mig þessa dagana. Bumban tók einhvern vaxtarkipp síðustu daga og ég er alveg steinhissa þegar ég þarf að víkka út buxur og annað.

11 Comments:
Þetta er greinilega myndarstúlka:)
Víííííííí - prinsessa :-D
Er að komast í sumarfrí eftir tæpan sólarhring! Verð í sambandi strax eftir helgi. Hlakka til að sjá ykkur!
Og þetta var sem sagt Sigrún Ósk...
En lille pige:) en skemmtilegt:) til lykke með það. Vona að Jakup njóti Íslands og nái að borða sig saddann af ss-pylsum;) Gangi ykkur vel í vinnunum og Danmörk biður kærlega að heilsa ykkur, Knús
Yes! Hlakka til að sjá þig Sigrún;)
Jákup borðar ss pylsur nokkrum sinnum í viku:-) hehehe
Öfunda þig af góða veðrinu!
Frábært, prinsessan á bauninni. gangi ykkur vel, spurning hvort hún stefni á atvinnumennsku í boltanum amk dugleg að sparka.kv heiðdís
Aww! Gegt sæt!!
já mikið stelpuflóð! Ásdís, þú kemur bara með strák!:)
Elsku Ásta og Jakup innilega til hamingju með óléttuna ;)
Mikið væri nú gaman að hittast við tækifæri. Ég er búin að taka niður símanúmerið og hringi fljótlega ;)
Hehe, en fyndið, mér finnst einmitt allir fá stráka í kringum mig:) En ég sé hvað þú átt við;-)
Ég hef einmitt verið að hugsa um þig Kristrún, það væri gaman að hittast við tækifæri:)
Jeiii innilega til hamingju :)
Kv Helga Dröfn
Post a Comment
<< Home