Klinikin er öll að skána, og ég er búin að upplifa margt og mikið og búin að læra heilmargt. Ég er bara bjartsýn á sumarið og sumarvinnuna!
En letin í mér seinnipartinn er allt annar handleggur. Ég nenni hreinlega engu þegar ég kem heim með lestinni frá Vejle. Ég veit að ég ætti að drífa mig í ræktina, og veit hvað ég mér myndi líða vel eftir á, en ég sest bara og horfi á sjónvarpið. Ég kenni kuldanum um! Nenni ekki út að hjóla í þessum kuldabola.
Á morgun er fastelavnspartý (öskudagspartý) í húsinu okkar! Við ætlum að borða saman, slá köttinn úr tunninnu og skemmta okkur saman fram á kvöld. Ég er ekki búin að ákveða í hverju ég á að vera, en ég er enn með dimmisjón búninginn inni í skáp.... Spurning um að vera Tinky Winky enn einu sinni?:-)

7 Comments:
Tinky Winky klikkar ekki :)
Var í aðgerð í gær og var hugsað til þín þegar ég lá á borðinu, mínútum frá svæfingu þegar læknirinn kom ásamt 2 læknanemum. Vona að þær hafi lært eitthvað :)
Hehe, gott að þú leggur fram líkamann í þágu vísindanna;) Vona að það hafi gengið vel! Ég var einmitt að hugsa hvernig fyrsta helgin í apríl lítur út hjá ykkur? Var nefnilega að spá í að kíkja í heimsókn til höfuðborgarinnar?
tinky winky rúlar:) ehhe
Ekkert plan nema lærdómur. Ég er nefnilega að fara í próf 11. apríl.
En get sko alveg tekið mér pásu upp úr bókunum og hitt á þig... ekki spurning! :o)
alveg í sama pakkanum, nenni engan veginn að fara í ræktina í þessum kulda, pásan mín frá ræktinni er búnað vera löng en það átti sko að byrja hress í febrúar en hmmm... það er bara svo kalt:S brr...
kv heiðdís
Tinkí Winkí er alveg málið... flotti búningurinn í bænum!
kveðja arndis
Tinky winky it is! Partýið byrjar eftir klst. Sjáum hver hleypur með vinninginn fyrir flottasta búninginn:)
Vigdís: Ég hringi í þig um helgina varðandi heimsókn;)
Heiðdís: Ég dróg djúpt inn andann og píndi mig út að hlaupa, veldúðuð og alles! Það gekk fínt, en viti menn, heldurðu að ég hafi ekki vaknað drullu kvefuð og lasin daginn eftir! Bömmer! Så kan jeg lære det;-)
Post a Comment
<< Home