Boooooring
Ég er á Vejle spítala, á geðdeild. Nei, ég er ekki sjúklingur. En mér leiðist alveg hræðilega! Við eigum að vera hérna í praktík í 4 vikur og mest allur dagurinn fer í að láta sér leiðast og bíða eftir að geta stungið af! Þetta er nú ekki hægt, ég vill helst læra sem mest fyrir sumarið. Ég á ekki að sjá næsta sjúkling fyrr en eftir klst, þá er best að taka einn bloggrúnt og lesa alls konar óþarfa á netinu;-)
Annars er ekkert að frétta af lífi okkar. Við komum heim seinnipartinn, eldum mat og borðum, horfum á sjónvarpið, smyrjum nesti fyrir daginn eftir (ok, ég geri það....J er ekki svona skipulagður) og ég hoppa í sturtu fyrir svefninn til að geta sofið lengur daginn eftir og svo er það bara í rúmið. Svo vakna ég í síðasta lagi kl.6 til að ná lestinni kl.6.30. Mér finnst alveg súrrealistiskt að sitja í lestinni og sjá klukkuna verða 7.....þá er maður venjulega að skríða á fætur! Í byrjun námsins gat ég ekki einu sinni vaknað þá, og mætti alltaf of seint. Ætli þetta verði veruleikinn eftir nokkur ár, kannski þarf maður að vinna í allt öðrum bæ og taka lest á hverjum morgni...? Ullabjakk.
Hér er ennþá skítakuldi, frost á nóttinni, og snjór mest alla daga. Ég bíð spennt eftir að það fari að hlýna, en veðurspáin segir að það eigi ekki að hlýna fyrr en í byrjun apríl:( Ég gæti alveg þegið smá hlýju bráðum!

3 Comments:
YOU VE BEEN HIT BY THE
|^^^^^^^^^^^^|
|BEAUTIFUL truck | |""";.., ___.
|_..._...______===|= _|__|..., ] |
"(@ ) (@ )""""*|(@ )(@ )*****(@
ONCE YOU VE BEEN HIT, YOU HAVE TO HIT 8 Beautiful People IF YOU GET HIT AGAIN YOU LL KNOW YOU RE REALLY BEAUTIFUL! IF YOU BRAKE THE CHAIN, YOU LL BE CURSED WITH UGLYNESS FOR 10 YEARS SO PASS IT HIT WHO EVER YOU THINK IS BEAUTIFUL!
kv heiðdís
Þú getur líka alltaf ákveðið að búa á Íslandi og sleppa við klukkutíma + lestarferðir í vinnuna. Jafnvel þó að þú ákveðir að búa á Selfossi værir þú innan við klukkutíma á lansann :)
Plús það að ég held að Teddi hefði gott af að fá frændsystkini, til að deila ömmu og afa með. Hann er að verða búin að vefja ömmu sinni og afa rækilega utan um litlafingurinn á sér!
Þá vitiði það :D Nú er bara að byrja að sannfæra Jákup ;)
Hahaha, jú, það er nóg af rugluðu fólki að tala við, og þetta er allt að lagast;) Ég hef haft nóg að gera síðustu daga, og þá er alltaf skemmtilegra í vinnunni! Fyrir mér er allt fólk sem talar um guð ruglað:Þ
Ég er sko staðráðin í að þurfa ekki að fara í lestarferðir í vinnuna;) Ég held ekki að ég þurfi að sannfæra Jákup mikið um það....hann á nógu erfitt með að vakna á morgnana nú þegar! Og ég er alveg sammála þér með frændsystkinið, greyið Teddi:) hehehe, ég held að hann njóti sín greyið!
Post a Comment
<< Home