Jæks!!
Vikan líður svo hratt, ég bara skil þetta ekki. Það er sennilega af því að það er próf eftir viku og mér finnst ég geta haldið endalaust áfram að lesa fyrir það:( Ég er að bilast yfir lyfjafræðinni!
Síðasta helgi var mjög fín. Við Jákup fórum til Köben og fórum í leikhús á laugardeginum. Það var mjög gaman, og skemmtilegt að gera eitthvað nýtt! Eftir það hittum við Herborgu og Bjössa og fórum með þeim út að borða á tælenskum veitingastað á Istedgade. Maturinn var virkilega góður og ekki skemmdi félagsskapurinn fyrir;) Síðan fórum við á kaffihús og fengum okkur nokkra bjóra og spjölluðum til rúmlega eitt. Svo var ætlunin að við myndum gista í Köben og fara heim á sunnudeginum, en þar sem við gengum framhjá lestarstöðinni á leiðinni heim til Herborgar og Bjössa, þá ákváðum við bara að hoppa í næstu lest heim og fara að sofa í eigin rúmi! Það var svo vibbalega kalt í DK þessa helgi að mann langaði ekkert sérstaklega að vera mikið á ferðinni hvort eð var. Það var líka ágætt að hafa allan sunnudaginn í lestur. Það eina var að ég sveik Vigdísi um að hitta hana á kaffihúsi á sunnudeginum:( Ég ætlaði að kíkja á bumbuna áður en bumbubúinn lætur sjá sig:) Ég verð bara að hitta hana í apríl í staðinn....
Vá hvað ég er eitthvað andlaus allt í einu... Já, skóli á morgun og yfirferð með lesfélaganum fyrir próf, æfing, og svo er pókerkvöld hjá strákunum. Jákup keypti pókerborð um daginn með öllu tilheyrandi, þannig að ég verð að fara að æfa mig í laumi:) hehe Á laugardaginn á Lene vinkona afmæli og þar sem hún er í sumarbústaðaferð með bekknum, ætlum við Jákup og Simon kærastinn hennar að koma henni á óvart og kíkja uppí bústað með köku.
Ég er alveg komin með nóg af kuldanum hérna! Það er við frostmark alla daga og allt að 12 stiga frost á nóttunni! Hvað á þetta að þýða??? Ég nenni ekki að vera gegnfrosin á lærunum á leiðinni í skólann lengur! Þó er þetta kannski skömminni skárra en veturinn sem ég var á 1.önn, þá rigndi stöðugt í 2 mánuði og maður var alltaf rennandi blautur fyrstu tvo tímana í skólanum. Enda vorum við ansi oft kvefuð í bekknum þá......það var ekki hægt að heyra í kennaranum fyrir hnerri og nefsogi! Alltaf er samt hægt að kvarta yfir einhverju:) Ekki satt Sigrún?;) hehehehe

1 Comments:
Hahaha, ju, mikid rett kona god! Eg get sko kennt ther sitthvad i listinni ad kvarta yfir ollu, er serfraedingur og bid bara spennt eftir ad fa skammarbjarsynisverdlaun Brosters einn godan vedurdag.
Sigrun kvartikona
Post a Comment
<< Home