Úffffff
Shit hvað ég er uppgefin núna! Ég var að koma úr fyrsta spinning tímanum mínum í heilt ár! Ég hef ekki farið í spinning síðan ég skipti um líkamsræktarstöð og ákvað að það væri kominn tími til að testa nýju skóna sem mamma og pabbi gáfu mér í jólajöf. Þeir voru líka mjög góðir, og alveg án efa flottustu skórnir í salnum;) Kennarinn var svooo mikil grybba að ég þorði ekki annað en að hálfdrepa mig á hjólinu, enda var ég fremst með öllum strákunum, sem greinilega voru þaulvanir þessari íþrótt, og þar af leiðandi þrjóskaðist ég ennþá meira!:) Svo fór ég eins og undin tuska í sturtuna, og hitti þar kennarann aftur, nema þá brosti hún hinu blíðasta og spurði hvar ég hefði verið í spinning áður..... að það væri greinilegt að þetta væri ekki fyrsti tíminn minn. Þá skipti ég snarlega um skoðun á gellunni, þetta er uppáhaldskennarinn minn héðan í frá!:) hehehe En ef ég er ekki alla veganna hálfu kg léttari eftir þessi átök þá veit ég ekki hvað!
Jákup var heima og eldaði fyrir mig kjúklingabringur og gróf hrísgrjón. Hann spurði þó fyrst hvort mig langaði í McD í dag en ég er svo mikið hörkutól að ég stóðst freistinguna og kaus hollustu:-) Enda er ég á góðri leið, búin að missa 2,5kg, bara 2,5kg eftir að fyrsta takmarkinu:)

3 Comments:
Spinning er bara fyrir hörkutól, jú gó girl :-)
Kveðja
Ásdís
Ekkert smá dugleg!
kveðja Arndís
Takk stelpur! Gaman að fá hrós frá svona líkamsræktarhörkutólum eins og ykkur!:) hehe
Post a Comment
<< Home