Thursday, March 04, 2010

Tannréttingar?


Jahá, í dag átti sér stað merkur áfangi í lífi mínu. Ég hef nefnilega verið leið yfir tannsettinu mínu alla ævi og eytt meiri eða minni tíma í að syrgja það að eiga ekki fallegri tennur. Eins og sumir vita datt ég á andlitið þegar ég var 6 ára, og framtennurnar skemmdust aðeins á því, auk þess sem mig vantar 2 tennur í genunum mínum. Vegna þess að eina framtönnina vantar, er tvíburi hennar mjög lítil og ekki til mikils gagns. Þetta hefur skekkt alla myndina, og höggið sem varð á tönnunum hefur svo illa skemmt aðra framtönn, sem er þess vegna rótarstutt og gulnuð. Augntennurnar eru báðar mjög gular. Allt í allt ekki mjög álitlegt, en sterkar tennur samt sem áður. Nú er svo komið að framtönnin og einn jaxlinn, sem er barnatönn, þola bráðum ekki mikið meira, og það þarf að setja upp skrúfu á báðum stöðum. Ég fór því að spyrjast fyrir um hvort það væri ekki hægt að rétta þetta aðeins í leiðinni og lýsa augntennurnar. Mér var því vísað á tannréttingasérfræðing, sem ég hitti svo í dag. Hann skildi mig mjög vel (enda fær hann borgað fyrir það, hehe) og benti mér á það að tannréttingarnar ættu eftir að kosta svipað og bara skrúfan myndi kosta fyrir barnatönnina, jaxlinn. Við tannréttingarnar er hugsanlega hægt að draga bara barnatönnina út og nota plássið til þess að færa hinar til. Þannig að það á eftir að koma svipað út fjárhagslega, en annars vegar fæ ég bara skrúfu fyrir barnatönnina og allt verður jafn skakkt og áður, og hins vegar fæ ég kannski draumatennurnar mínar! Það á hins vegar eftir að taka 2 ár eða meira. En ég held að það verði alveg þess virði. Hins vegar verð ég að fá skrúfu fyrir framtönnina hvað sem ég geri annars, og það kostar sitt, auk þess sem þessar aðgerðir verða að samræmast. Þetta verður því stórverkefni!
Þetta verður þrítugsafmælisgjöfin til sjálfrar mín :D

Annars var ég að hugsa hvort þetta sé fyrir suma sambærilegt við að fá sér silíkon eða nefaðgerð eða slíkt? Eins fjarri það er mér að fara í lýtalækningar (þótt ég hafi nú oft getað hugsað mér að minnka fjölskyldustoltið okkar, nefið...), þá finnst mér tannréttingar miklu eðlilegra. Tennurnar eru jú nauðsynlegar, en í þessu tilfelli er þetta farið að snúast um útlitsbreytingu, þannig að það er hægt að rökræða nauðsyn þess. Og jú, ég er að fara að breyta því sem gerir mig að mér. En ég er orðin þreytt á að heyra að það sé bara sjarmerandi að vera með skakkar og öðruvísi tennur! Kannski er þetta aldurinn sem er að færast yfir mig ;)

11 Comments:

At 10:13 PM, Blogger Kalldoro said...

Mér finnst þetta alls ekki vitlaus hugmynd. Um að gera að fyrst þú þarft að leggjast í framkvæmdir á annað borð að nota bara tækifærið og laga aðeins til. :) Ég segi bara go for it, og þú þarft ekkert að réttlæta það neitt.

Dóris

 
At 4:32 PM, Anonymous sigga said...

Sammala Doru, tho thu sert fullkomin eins og thu ert;) Skil thig vel. You go girl

 
At 11:41 PM, Anonymous Anonymous said...

Njóttu þess bara :)

(Þó það verði ekkert gott kannski!!)

Gangi þér vel
Kv. Helga Dröfn

 
At 10:44 PM, Blogger Ásta said...

Takk stelpur! ;)

 
At 12:16 PM, Blogger Unknown said...

Sammála síðustu ræðumönnum, sæt eins og þú ert en ekkert að því að fara í tannréttingar ;) Ég gekk í gegnum það og það er ekkert það skemmtilegasta meðan á því stendur en svoooo gaman þegar það er búið ;) Gangi þér vel og söknum ykkar hérna á Íslandi, hefði verið næs að hafa þig nálægt í fæðingarorlofinu ;) Bestu kveðjur til ykkar allra**

 
At 5:00 PM, Blogger Ásta said...

Takk fyrir það sæta! Gæti ekki verið meira sammála. Hefði verið gott að hafa einhvern nálægt til að drekka kaffi með :) Gangi ykkur rosalega vel með nýja lífið!

 
At 5:38 PM, Blogger Sigrún Ósk said...

Þú segir fréttir!

Hef einmitt oft hugsað um þessa tannréttinga-/lýtaaðgerðasamlíkingu og finnst stigsmunur á þessu, ekki eðlismunur.

Er sjálf búin að fara fjórum sinnum í viðtal til tannréttingasérfræðinga, en þeir vilja allir hafa mig með spangir þar til ég verð gömul og grá svo ég hef ekki nennt því. Auk þess á það að kosta 2-3 milljónir og ég get hugsað mér margt skemmtilegra að gera við þá fjárhæð.

Þannig að... 2 ár og peningar sem þú þarft hvort sem er að punga út - slegið!

 
At 8:38 PM, Blogger Ásta said...

Yes! Alltaf gaman að heyra af fleiri í sama pakkanum ;) Hins vegar rámar mig ekki í hvað það ætti að vera sem þig langar að láta rétta! Svona sér maður þetta "best" sjálfur :D

 
At 2:45 PM, Blogger Unknown said...

Ég er ein af þeim sem finnst oft"sjarmerandi að vera með skakkar og öðruvísi tennur" og finnst þú fín eins og þú ert. En ég skil þig samt mjög vel og þar sem þú ert búin að vera ósátt í mörg ár segi ég hiklaust go for it:)

 
At 8:17 AM, Blogger Ásta said...

Takk!
Ákvörðunin var eiginlega tekin þegar hann sagði að ég þyrfti að borga það sama fyrir skrúfu hvort eð væri ;)

 
At 11:11 AM, Anonymous Anonymous said...

Það þykir sjarmerandi að vera með skakkar, en ég var einmitt með SKAKKAR í "denn" og fór í gegnum þetta, þó enn smá "sjarmi" eftir uppi í mér :) Já af hverju ekki drífa sig, tíminn er hvort sem er svo fljótur að líða, þetta verður allt yfirstaðið áður en þú veist af :)

 

Post a Comment

<< Home