Friday, January 11, 2008

Ræktin

Vá hvad ég var búin ad gleyma hversu threyttur madur er thegar madur er nýbyrjadur ad taka á thví aftur í ræktinni! Ég fór í spinning á sunnudaginn, hljóp og fleira á thridjudaginn og fór í Pilates í gærkveldi. Og ég er búin ad vera óvenjulega threytt, en veit líka ad vellídan tekur fljótlega vid;) Kvídi samt mest hardsperrunum í magavødvunum sem koma á morgun eftir pilates tímann. Jesús pétur hvad magaæfingarnar voru erfidar! Thetta voru ad mestu kyrrstædar magaæfingar, m.a. á bolta, thar sem madur verdur ad spenna í grindarbotninum, magavødvunum, rétta úr bakinu, ýta øxlunum aftur og muna svo ad anda! Allt í einu. Thá mætti halda ad ég væri fáviti. Get med engu móti munad eftir øllu á sama tíma. " Ohh shit, ég slakadi á í magavødvunum" "NEI thá gleymdi ég øxlunum" "Shit -grindarbotnsvødvarnir!!" Og svo framvegis. Kannski eftir svona 30 tíma med sømu rútínu verd ég farin ad geta thetta:-D Thá er spinning audveldara, thar tharf madur bara ad svitna eins og hross og halda út tímann. Sem er erfitt thegar thad er lidid hálft ár sídan sídast. Thá er ekki gód hugmynd ad stilla sér upp fremst thannig ad allir geti horft á mann hvort madur sé ad gefast upp og hvort madur geti stadid allan tímann. Man thad næst.
Er á vakt og get ekki bedid eftir ad koma heim til kartøflunnar á morgun. Hún er yndislegust. Henni finnst kryddadur matur bestur og bidur um ad fá spennur í hárid.

7 Comments:

At 5:00 AM, Blogger Sigrún Ósk said...

Hey, ég var líka að skrá mig í pilates! Fór í fyrsta tímann á miðvikudaginn og var sú eina sem ekki hafði grun um hvernig á að þjálfa grindarbotninn. Mjög vandræðalegt. Til hamingju Ísland með mig.

Ég ætla að reyna að panta mér far til Danmerkur eftir helgi! Þá kíki ég nú í heimsókn með karlinum =) Hann og kartaflan geta rifjað upp gömul kynni og svona, haha!

 
At 8:18 AM, Blogger Ásta said...

Jei!!!!! Jájájá!:-D

Vardandi grindarbotninn...ég er búin ad læra ad æfa hann, en thad er sorglega erfitt:(

 
At 6:05 PM, Blogger Sigrún Ósk said...

Komum 31. janúar og verðum til 3. feb. Eruð þið heima þá? =)

 
At 6:57 PM, Blogger Ásta said...

Jahá! Hlakka til!:-D

 
At 1:55 PM, Anonymous Anonymous said...

Sæl og blessuð frænka og gleðilegt ár og allt það. Og takk fyrir jólakortið, ég lofa að þú færð kort frá mér næst!!
En hvað ég skil þig með pilates, ég er einmitt búin að fara í 3 tíma í pilates (er á 8 vikna námskeiði) og mér líður alltaf eins og ég hafi fengið róandi sprautu þegar ég er búin í tímanum!! Þetta kannski lagast með tímanum! Ég er nefnilega búin að komast að því að ég er með brjóskútbungun í L4-L5 og L5-S1, þannig að það borgar sig víst að styrkja vöðvana sem halda hryggnum uppi!
Kveðja, Kaja og co.

 
At 11:35 PM, Blogger Sigrún Ósk said...

Það að ég sé búin að kommenta áður en ég pantaði far, eftir að ég pantaði far og núna eftir að ég kom heim úr ferðinni þýðir að þú ert slappur bloggari kona góð ;)

Takk innilega vel fyrir okkur! Hrikalega gaman að sjá ykkur familíuna og ekki hvað síst kartöflukrúttið.

Knús á liðið,

Sigrún og Jón Þór

 
At 12:22 PM, Blogger Ásta said...

Hehe point taken;)

Bíð spennt eftir jólakorti í ár Kaja:-)

 

Post a Comment

<< Home