Nýja barnið mitt
Er hann ekki sætur, litli hnoðrinn? Þetta er sonur David og Stine, vina okkar, sem komu með okkur til Íslands fyrir 2 árum. Hann fæddist 3 vikum fyrir áætlun. Ég er að hugsa um að ættleiða hann. Veitir ekki af, ég hef ekkert að gera:)Hér er allt með kyrrum kjörum. Helstu fréttir eru þær að ég er búin að losa mig við 5,5kg og er afar stolt af, og að Kristina Ósk ældi upp í mig í gær. Ég lyfti henni upp yfir höfuðið á mér og brosti sólheimaglotti og fékk þá þessa heitu gusu upp í mig, alveg niður í kok. Mæli ekki með því, það er ógeð. Ég þurfti að skola munninn og fá mér eitthvað að borða og drekka til þess að bæta ekki við æluna!
Á morgun kemur Dóra systir, hún ætlar að vinna hérna í Odense í sumar og fær lánaða íbúðina hennar Halldísar á meðan. Það verður nú notalegt að hafa litlu sys hjá okkur í allt sumar, og að þær frænkur geti kynnst nánar. Ég hlakka mikið til að fá barnapíu svo ég komist meira út að hlaupa;-)
Mánuður í heimkomu! Stopp í viku. Bókanir hér að neðan í kommentum:)

13 Comments:
MMMmmmm heit æla oní kok....
HD
Við erum farin að hlakka til að sjá ykkur mæðgurnar :) það styttist óðum. Ekki gleyma að reikna með tíma í að hitta okkur. Hver veit nema veðrið verði eins gott og það er búið að vera undanfarið, þá verðiði dregnar með í sund :D
hvenær á að mæta á klakann, dato??
HD: Já, heit ungbarnaæla með gallbragði, það jafnast ekkert á við það!:)
Pálína: Við erum rosalega spenntar og meira en til í að koma í sund;-)
Herborg: Við komum 26.júní og förum 3.júlí. Ætli öll plön verði ekki að miðast við hádegishittinga, þar sem ég er bundin við að svæfa barnið um kvöldmat. Nema að mamma vilji passa;)
Bíddu halló!! Svindl!! Ég kommentaði samviskusamlega í gær og það er horfið... sniff, sniff...
En kommentið hljómaði eitthvað á þessa leið:
Ojojojoj, brrrr... þetta minnir mig á þegar Pási skeit upp í vin hans Jóns Orra! Nema mér finnst ælan eiginlega ógeðslegri. Jahérnahér...
En ég pant, pant, pant heimsókn! Eða hádegismat - eða eitthvað! :) Hlakka roooosa mikið til að sjá ykkur!! Jibbíííí!
Já, ég mæli ekki með svona gusu;-S
Við verðum að hittast, það er engin spurning! Verðum í bandi þegar ég kem!
Hi ég væri sko til í að hittast með skvísurnar, ef þú ert ekki uppbókuð?
Og ekki væri verra að hafa hana Sigrúnu okkar með. Hvernig hljómar það. Þið eruð allar velkomnar í hátúnið:)
Það hljómar mjög vel!:-) Ég er alls ekki uppbókuð, hehe:) Hvaða dagur hentar ykkur?
Frábært:)
Þú mátt bara velja dag og tíma og láta mig vita. Það eru engin sérstök plön hjá okkur þessa viku.
Hlakka til að sjá ykkur:)
Flott!:)
Hvenær getur Sigrún the busy woman?
Já ætli sé ekki best að finna tíma út frá því hvenær hún kemst, hún er alltaf svo busy konan:)
Þið getið bara komið ykkur saman um tíma og látið mig vita. Er ekki bara fínt að hittast heima hjá mér, fín barnaaðstaða í gangi hér;)
Það væri nú gaman ef ég þú og Helga gætum hist eitthvað :O)
Það væri auðvitað tilvalið:-) Hvenær eruð þið lausar?:-D Eða hvenær er Helga í bænum? Ég get ekki keyrt til Borgarness með Kristinu eina í bílnum, allt of langt:(
Post a Comment
<< Home