Monday, April 25, 2005

Gleðilegt sumar!

Við erum aldeilis búin að borða góðan mat á meðan pabbi hefur verið hjá okkur. Ummmm. Við erum að elda hamborgarahrygg með brúnuðum kartöflum núna og ilmurinn af kjötinu er alveg að gera bragðlaukana í mér brjálaða:) Hlakka til að skófla honum í mig...
Við fórum til Köben á þriðjudaginn og skelltum okkur í tivoli, og gamli maðurinn stóð sig eins og hetja. Hann fór með mér í öll tækin, enda var hann búinn að kaupa sé turpas, og það meira að segja tvisvar í gullna turninn ægilega! Ég er stolt af honum, kallinum! Jákup þorði sko engu og horfði bara á okkur:) Svo fengum við okkur að borða og röltum niður á Nyhavn áður en við keyrðum til baka.
Á miðvikudaginn fórum við með pabba í tölvuleiðangur og keyptum okkur nýja tölvu! Þvílíkur lúxus að vera með almennilega tölvu, og þvílíkur lúxus að hafa pabba til að setja allt upp og ná í öll prógröm eða hvað þetta heitir allt saman:) haha Ég held reyndar að pabba hafi ekkert leiðst þetta;) Svo tókst okkur á fá virus í tölvuna strax fyrsta daginn, þannig að þeir gátu skemmt sér við að losna við hann aftur í sameiningu, pabba og Jákup. En nú getum við nördast enn meira en fyrr og setið í sitt hvorri tölvunni og verið bæði á netinu því pabbi er auðvitað búinn að redda því líka:)
Svo fór ég að djamma á föstudaginn og pabbi fór til Michael vinar síns, og við vorum bæði ansi þreytt á laugardaginn og gerðum mest ekkert. Í gær skelltum við okkur þó í bíltúr til Bogense. Mér tókst líka það afrek að mistakast herfilega að baka marengsköku, og hún endaði bara í einni klessu í skál, með súkkulaðibitum og rjóma:S Við átum hana þó með bestu lyst, vopnuð einum gafli hvert!
Nú er bara einn dagur eftir af heimsókninni hans pabba og þá tekur hversdagsleikinn við! En við huggum okkur þó við að við erum búin að bæta á okkur smá forða fyrir næsta mánuðinn eða svo (á vömbina!) og svo er alltaf að hlýna;) Jey!

4 Comments:

At 8:11 PM, Blogger didi said...

Til hamingju með nýju tölvuna!Flott þetta tölvusystem, maggi var einmitt að setja upp ráder þannig að núna getum við bæði verið á netinu í einu... jafnvel talað saman á msn;) smá nördaháttur, hehe. Kv Heiðdís

 
At 11:18 PM, Anonymous Anonymous said...

Karlinn kom heim ferskur og hress, hefur greinilega verið huggó hjá ykkur :)

Bara snilld allt saman.

Kristinn

 
At 10:55 PM, Anonymous Anonymous said...

Á maður ekki að safna forða fyrir veturinn Ásta ? ;)

Kiwi-inn

 
At 11:53 PM, Blogger Ásta said...

Já takk! Nú þurfum við ekki einu sinni að tala saman...við erum með 2 tölvur og 2 sjónvörp! Einhverjir segja að það sé óhollt fyrir sambandið, hehe...;)

Það var gott að fá bæði pabba og Dóru í heimsókn. Nú bíð ég bara spennt eftir að sjá ykkur í júní:) Jey!

Jú, en það er einmitt eintóm lygasaga! Maður á að safna forða þegar maður þarf á afsökun að halda til að éta yfir sig;)

 

Post a Comment

<< Home