Við Jákup vorum nú ekki atorkusöm framan af í dag, hann svaf til að verða 12.30 og ég surfaði á netinu á meðan og dinglaðist um í náttfötunum. En svo dröttuðumst við í föt og fórum út í Netto og versluðum inn fyrir helgina. Ég held nefnilega kjaftaklúbb á morgun fyrir íslensku stelpurnar og ætlaði að baka eina köku og ýmislegt annað. Svo skellti ég kökunni í ofninn og fór að kíkja í kringum mig. Það er nefnilega svolítið skondið hvernig maður gengur frá hlutunum fyrst þegar maður flytur í nýja íbúð, og svo fá hlutirnir bara að standa þar af því að maður hættir að hugsa um innréttingar á íbúðinni eftir smá tíma. Nú er eitt og hálft ár síðan við fluttum hingað og prentarinn hefur fengið að liggja á gólfinu þangað til í dag, en þá fluttum við eina kommóðuna til svo að prentarinn gæti staðið þar í staðinn. Svo boraði ÉG göt í veggina og setti upp tvær myndir. Og fyrst við vorum að þessu þá þrifum við aðeins líka....gott mál.
Í gær vorum við boðin heim til Lene og Simon að borða. Við fengum nautalundir og kartöflur sem var rosalega gott. Jákup iðaði alveg hreint, hann langaði svo að fara að djamma og reyndi allt sem hann gat til að lokka okkur hin með sér, en allt kom fyrir ekki. Lene fór inn að sofa kl.23 og við hin horfðum á Blade II í sjónvarpinu (ég sofnaði og Simon geispaði allan tímann). Þannig að minn var mjög glaður þegar Rúni hringdi í dag og bað hann um að koma út að djamma með strákunum í kvöld. Ég ætla hins vegar að njóta þess að fá að slappa af og lesa bók í friði án þess að vera sökuð um að vera anti-social allt kvöldið!:)

3 Comments:
Skondið :)
KT
Hallo lufsa!
Eg byrjadi ad lesa og helt mer til mikillar furdu ad thid hefdud verid ad flytja... haha.
Vona ad thid hafid thad gott, bid ad heilsa Kobba klo.
*smakk*
Sigrun Osk
Sko, alltaf er verið að hlæja að orðaforða manns! Ha?! Annars er nú langt síðan ég hef notað orðið skondið...:)
Nei nei, við erum bara svona húðlöt og nennum ekki að ganga almennilega frá hlutunum!:) Engir flutningar fyrir mig takk!
Ég les alltaf reglulega frásagnir þínar frá Perú, hlakka til að fá þig heim samt!:) Hafðu það sem allra best á meðan!
Post a Comment
<< Home