Sumar í Danmørku
Djøf......auli get ég verid!! Nú er ég búin ad eyda sídustu 20 mínútunum í ad reyna ad muna hvad ég skýrdi helv....bloggid! Eda thad er ad segja hvada notendanafn ég valdi mér.. Thetta var ekki sérlega vel úthugsad greinilega. Ég var greinilega ekki med allan hugann vid thetta í gær. En ég komst inn! Jibbí!
Í dag er annars thad í fréttum ad thad er loksins komid almennilegt sumarvedur! Ég hugsa meira ad segja ad ég eydi einhverjum hluta dags á morgun í lestur utandyra. Jei! Og ég keypti mér sólarvørn í dag, faktor 15, í ljósi thess ad thad er mér enn ferskt í minni hversu illa ég brann í próflestrinum í fyrra. Thá brann ég svo illilega á øxlunum ad ég gat hvorki sofid á bakinu né hlidunum í 2 nætur, og vard thví ad thróa med mér listina ad sofa á maganum -sem mér hefur alltaf verid ákaflega illa vid. Ekki hjálpadi sú stadreynd ad sama dag var ég bitin af moskítóflugu, bólgnadi svo upp á økklanum ad ég gat ekki verid í neinum skóm, og fékk hita og slappleika í kjølfarid. En mér hefur thó takist ad venja mig á ad sofa á maganum í nokkrar mínútur á hverri nóttu sídan, en thó ekki meira en thad. Thad var thó hægt ad hugga sig vid thad ad prófin gengu eins og í søgu thrátt fyrir ófarirnar. Ok ok, ætli ég nái ekki í íslenska stafrófid....
Þetta var betra. En þótt ad stafrófið sé komið á sinn stað, lofa ég engu varðandi íslenskuna. Hún á það til að líða fyrir dönskuhjal mitt allan daginn vid hann Jakob og lesfélaga minn hana Mette.
Ég brenndi poppid mitt, verð að poppa aftur!

3 Comments:
Hey sæta frænka, gaman að sjá þig komna í hóp bloggara :) já, maður var ekki viss um hvort þú værir enn ofar moldu, en þarna ertu samt greinilega. Bara svona láta þig vita að ég fylgist með :)
Kveðja,
Lalli litli frændalingur
Ég ætlaði að kalla þig Ástu ofurhetju, en hætti svo við þegar ég ætlaði að fara að bæta við að þú hefðir smitast af internet-blogg-lífs-pestinni. Þá ertu nú varla mikil ofurhetja!! Híhí!
En jæja...það er allavega gaman að vita að núna er betur hægt að fylgjast með hvað þú ert að dandalast þar sem við tölum ekkert alltof oft saman!
*knús* Seeya around the blog dude!
Emmmm, ég giska á ad þetta hafi verið skrifað af henni Dóru systur?? En ég er superhetja! Nema hvað að ég kann ekki að gera neitt við þessa blessaða síðu, eins og að setja linka á hana....hjálp óskast!:)
Post a Comment
<< Home