Stundum verður mér hugsað að það sé stórfurða að kvenfólk í dag skuli almennt vera við góða geðheilsu. Í dag þarf maður að uppfylla öll hlutverk samtímans á sama tíma. Vera í góðri og krefjandi vinnu, sinna börnunum vel, vera góð eiginkona, líta vel út, stunda líkamsrækt, elda allan mat sjálfur og helst raw food eða amk allt lífrænt ræktað og sykurlaust, eiga góða vini sem maður hittir reglulega, vera virkur í foreldranefndum í skólum og leikskólum, og vera alltaf vel klipptur og vel klæddur!
Týpísk vika lítur svona út hjá okkur:
Mánudagur: Ræs kl.6, hafragrautur, nesti smurt, samningaviðræður við Kristinu um í hvaða föt hún á að fara. Út um dyrnar kl.7, Jákup keyrir Kristinu, ég hjóla með Írisi. Jákup keyrir í 35mín í vinnuna, ég hjóla á 15 mín frá dagmömmunni. Vinna til kl.15, sækja báðar stelpur á hjólinu og heim að fá okkur smá nasl og leika. Jákup kemur heim og ég elda mat, við fóðrum stelpurnar og böðum þær, lesum og háttum og þær fara að sofa á milli kl.18 og 19. Svo þarf að ganga frá þvotti, taka til, henda í uppþvottavél og svo er ýmist búið að slökkva á batteríinu mínu og ég dett út af kl.21, eða ég fer að vinna í rannsóknarvinnu í tölvunni (plús mínus facebook og mail! :)
Þriðjudagur: Jákup fer á næturvakt, á að mæta kl.15. Ég er ein með allan pakkann um kvöldið. Kristina fær að sofna í mínu rúmi. Íris vaknar 4 sinnum yfir nóttina og stelpurnar taka saman allt plássið í hjónarúminu. Ég með samviskubit yfir að hafa þurft að skamma Kristinu tvisvar á þessum tveimur tímum sem við erum saman fyrir háttatíma. Og enn einu sinni komst ég ekkert í ræktina í dag.
Miðvikudagur: Við vöknum saman allar þrjár kl.6, og nú þurfa að vera hraðar hendur til þess að komast af stað tímanlega til að hjóla með báðar stelpurnar fyrir vinnu. Helv... hjólavagninn er með vesen eins og venjulega. Dreymir um að eiga annan bíl! Brjálað að gera í vinnunni, er gjörsamlega heiladauð í lok dags. Var of þreytt til að fara út að hlaupa þegar stelpurnar eru sofnaðar, tímdi því ekki áður.
Fimmtudagur: Íris veik. Hver á að vera heima? Djöfull. Það okkar sem á að vera á vakt í stað stofugangs eða annars fer í vinnuna. Hitt er heima. Innri togstreita metnaðarins og samviskubits gagnvart vinnufélögum annars vegar og tilfinningar foreldris hins vegar berjast inni í okkur. Það er bara notalegt að vera heima með litla strumpinn þegar maður er búinn að losa sig við samviskubitið.
Föstudagur: Ég á kvöld-næturvakt. Gott að eiga rólega morgna inn á milli. Fullkomlega þess virði að vera í vaktavinnu. Jákup keyrir í vinnuna og ég hjóla með stelpurnar seinna en venjulega. Legg mig í 2 tíma og tek til. Sæki þær snemma og tek svo á móti barnapíunni sem kemur að passa þangað til Jákup er kominn heim. Ég hjóla í vinnuna.
Laugardagur: Kem heim kl.9 eftir kvöld-næturvakt, svaf ekkert á vaktinni en tími ekki að sofa á meðan stelpurnar eru vakandi. Leik við þær þangað til Íris þarf að leggja sig og sef á meðan. Hundrað verkefni á heimilinu bíða þess að vera sinnt. Þvottur eftir alla vikuna og þrif. Innkaup og matarplön fyrir vikuna. Samningaviðræður seinnipartinn un hvort foreldrið sé meira þreytt og hvort megi leggja sig. Samviskubit yfir því að hafa ekki verið nógu virk með stelpunum og hafi ekki gert eitthvað brjálæðislega frumlegt og örvandi eins og að fara niður á strönd í skítakulda og tína skeljar.... Fórum út á rólo í hálftíma. Fór heldur ekki út að hlaupa í dag.
Sunnudagur: Er að vinna dagvagt, seinnipartinn er í rólegheitum. Elda eitthvað fljótlegt úr frystinum eða pasta eins og venjulega. Hvert fór hugmyndaríkin í matargerð?? Þyrfti að hlaupa, skrifa verkefni, prjóna kápuna sem ég er að gera fyrir Írisi, sauma jóladagatal fyrir Írisi, setja myndir í albúm, taka til í geymslunni, horfa á kvikmyndina sem ég er búin að geyma í stofunni í margar vikur, lesa bókina sem ég þarf bráðum að skila á bókasafnið, hringja í 5 vinkonur, svara e-mailum, borga reikninga, lita á mér augabrúnirnar, raka á mér lappirnar, borða minna nammi. En ég sofnaði með Kristinu kl.20. Zzzzzzzzzzzzz