Sunday, September 21, 2008

Villtumst í Odense


Helgin var mjög skemmtileg, en mikið rosalega kom ég litlu í verk! Í gærmorgun fórum við með Kristinu í klippingu og svo fórum við í göngutúr um miðbæinn og splæstum í smá föt á mig og dvd fyrir Kristinu. Svo fór seinniparturinn bara í lúra og afslöppun. Amma og afi hennar Kristinu komu svo að sækja hana, og hún náði bara í skóna sína og vinkaði bless:) Hún er ótrúlega auðveld, það er ekkert mál að láta passa hana. Hún svaf eins og steinn og var eins og engill hjá þeim fram á morgun í dag. Við Jákup skelltum okkur svo í afmælisveislu hjá Berglindi og Gyðu og skemmtum okkur rosalega vel. Við komum seint heim og vorum frekar framlág í dag. Svo enduðum við daginn á grillmat heima hjá tengdó. Ég er sko komin í náttfötin og ætla mér engin stórverk í kvöld. Ég finn það að ég má ekki við mörgum svona helgum, lesturinn situr algjörlega á hakanum! Svo er annað, síðan við komum heim frá Íslandi hefur verið eitthvað skylduverk í hverri viku sem eyðileggur lestur þann dag. Óþolandi tímaþjófur! Fyrstu vikurnar var það bíllinn, koma honum í lag og selja hann. Svo þurfti ég að fara í bankann að tala við ráðgjafann. Kristina þurfti að fara í læknisskoðun upp á spítala, til þess að meta hvort það eigi að ómskoða nýrun hennar. Ég þurfti að fara til læknis til þess að láta líta á fæðingarbletti, og þarf svo að fara aftur á morgun til þess að láta fjarlægja blessaðan blettinn. Kristina fer til HNE læknis á þriðjudaginn, ég til tannlæknis í næstu viku, og svo er komið að ómskoðuninni á miðvikudag í næstu viku. Ég má ekkert vera að þessu!! Enda verður ekki meira um lækna eða tannlækna í ár, búin að ákveða það:) Ég hef bara frá 13 til 15.45 til að lesa, og þá þarf ekki mikið til þess að eyðileggja það. Það er auðvitað lesið á kvöldin líka eins og hægt er, ef ég er ekki að sofna yfir bókunum.
Annars er alveg skammarlegt að segja frá því að við Jákup villtumst á leiðinni í afmælið í gær. Við hjóluðum þangað, og vorum amk 45mín að finna eitthvað sem max hefði átt að taka 15mín! Við erum bara búin að búa í Odense í 7 ár! Við hjóluðum óvart framhjá götunni sem við áttum að beygja inn, og svo þvældumst við um allt, yfir grindverk (hjólin líka!) og runna (jákup bar mig, hann vildi ekki eyðileggja sokkabuxurnar! hehehe), í kringum fótboltavöll og annað. Þetta var ævintýri í lagi! Þrælhuggulegt allt saman:)

3 Comments:

At 9:19 PM, Blogger Sigrún Ósk said...

Hahaha! Blessuð vertu... Ég gæti ekki einu sinni verið sendill hérna á Akranesi! Er svo áttavillt. Svo er alltaf verið að bæta við nýjum hverfum eins og ekkert sé!

Flissaði pínu yfir HNE lækninum. Það tók mig alveg fimm mínutur að fatta hvað sá maður myndi gera... Annað hvort þarf ég að fara að eiga börn eða læra til læknis :) Gengur ekki að vera svona út úr lækna-lingóinu!

Knús,
Sigrún

 
At 9:01 AM, Blogger Ásta said...

Hehe, stundum er ég svolítid litud af umhverfinu:) Kannski vita ekki allir hvad HNE læknir er...
Fyrir ykkur hin: háls, nef og eyrnalæknir:-D

 
At 12:04 AM, Anonymous Anonymous said...

Jeijjjj ég vissi það HAHAHA - bara af því ein vinkonan er í læknisfræði hér heima og var skráð á msn um daginn "HNE.. eitthvað" :D

Kveðja Frú Helga Dröfn

 

Post a Comment

<< Home