Wednesday, September 03, 2008

Baðdýrið okkar

Einu sinni sat maður stilltur og góður í baði. Nú er mesta sportið að klifra í og úr balanum og henda baðdótinu í báðar áttir:)
Kristina byrjaði í leikfimi í gær. Hún fer með foreldrunum einu sinni í viku. Hún stóð sig eins og hetja í gær, þótt hún væri yngst. Hjalte, Tobias, Isak og Andreas eru líka með (allt börn bekkjafélaga okkar). Rosa stuð! Það velta fram ný orð á hverjum degi núna. Hún segir meira, bíll (og bendir bæði á bíl og hjól!) og bók m.a. Svo klifrar hún upp í barnastólinn sjálf og getur hoppað. Þetta er rosalegt.

Mér tókst að búa til óætt lasagne í kvöld. Það var eitthvað skrítið, annaðhvort kjötið eða osturinn... Mig grunar kjötið, vinir okkar tæmdu frystinn sinn í okkar um daginn áður en þau fóru til New Zealand í hálft ár, og ég veit ekki hvort þetta var nautakjöt eða eitthvað annað og hversu lengi það hafði verið í frysti! Ég endaði amk á því að borða ís í kvöldmatinn. Kristina vildi frekar epli og fékk það, og Jákup kláraði svo ísinn þegar hann kom úr fótbolta. Ergilegt, því þetta átti að vera í matinn líka á morgun, til þess að spara okkur vinnuna:( Við fáum þá bara SSpylsur í staðinn;)
Við seldum bílinn í dag. Söluverðið var nú frekar slapt, en notaðir bílar eru því miður ekki mikils virði þessa dagana og ég er bara fegin að við gátum borgað bílalánið niður. Þá er það bara að hjóla aftur alla daga! Ég fékk forsmekkinn af því í dag, náði í Kristinu með skólatöskuna á bakinu með tölvu, þungri bók og hinum ýmsu pappírsmöppum í, ásamt nesti og öðru. Sjæse. Spurning um að stoppa við heima fyrst og skila af sér töskunni. Ég verð orðin mössuð um jólin;) Það á að rigna alla vikuna og ég fékk pent að heyra það í dag frá Jákupi að ég væri ekki mjög smart í regnjakkanum mínum. Hmmmm, hvað gera bændur þá? -Þá verður hann að kaupa á mig nýjan, er það ekki?:)

7 Comments:

At 10:19 PM, Anonymous Anonymous said...

En hvað hún er sæt í leikfimitímanum, fáum við að sjá fleiri myndir?

Mér finnst annars þetta komment á regnjakkann réttlæta fullkomnlega kaup á nýjum, ég tala nú ekki um fyrst þú þarft að hjóla daglega í vetur :)

 
At 2:30 PM, Anonymous Anonymous said...

Æi hvað hún er orðin stór og dugleg krúsin, verð að hitta hana afur einhvern daginn, finnst ég orðið þekkja hana eftir að hafa fylgst með myndum af henni svona lengi;)
Gott hjá ykkur að selja bílinn, svo ágætt að vera bíllaus.
Og já nú verður kallinn sko að splæsa í nýjan glimrandi fínan regnjakka handa þér,ekki spurning!;)

 
At 12:15 AM, Blogger herborg said...

Svona komment geta verið ansi dýr. Definetly nýr jakki sem fyrst:)!!

Sætar myndir af músinni!

 
At 12:36 AM, Blogger Sigrún Ósk said...

Snúlludúlla í leikfimi :) Uss, hvað þetta er orðið fullorðið!

Tek undir með rest - auðvitað færðu nýjan jakka og það strax ;)

 
At 7:33 AM, Blogger Ásta said...

Hehe, takk fyrir stuðninginn stelpur, það verður eitthvað gert í málunum fljótlega....þeas ef það er hægt að vera smart í regnfötum;)Það eru komnar myndir inn á barnaland!

 
At 5:04 PM, Anonymous Anonymous said...

HAHHAAHA þarna skaut hann sig í fótinn múahahaha - einn sem þarf að fórna aurum í FLOTTAN SEXÝ pollajakka.. (sumum finnst þetta í alvöru geggjað sexý!! - ekki mér samt!)

Af hverju selduði bílinn? er verið að spara fyrir heimkomu? :)

Helga Dröfn

 
At 8:00 PM, Blogger Ásta said...

Við getum ekki unnið með skólanum þessa önn, og höfum því ekki efni á að reka bíl. Síðasta hálfa sultarárið:)

 

Post a Comment

<< Home