Thursday, September 11, 2008

Ég er svo sjúklega þreytt þessa dagana, það er ekki þægilegt. Ég get ekki haldið haus eftir kl.20 á kvöldin og er líka þreytt í skólanum á daginn. Það er verið að troða þvílíku magni af upplýsingum í hausinn á okkur að það hlýtur að vera að taka sinn toll. Það hjálpaði heldur ekki að ég fór í blóðbankann í gær og lét úr handleggi hálfan líter af blóði....hmmmm. Talandi um blóð.....ég skil enn ekki þetta hæmostase drasl sem fjallar um alla storknunarfaktorana og annað, og mun aldrei gera til fullustu. Ég verð sem sagt aldrei mediciner:(
Spennandi að sjá hvernig maður verður útlítandi eftir 4 mánuði, pant ekki láta taka myndir af mér í útskriftinni!

5 Comments:

At 9:33 AM, Anonymous Anonymous said...

úff strembinn lokasprettur hjá þér, but you can do it!!

 
At 2:27 PM, Blogger Halldís said...

þú átt eftir að vera svo ánægð í útskriftinni að þér á eftir að vera and... sama hvernig þú lítur út ;)

 
At 11:22 PM, Blogger Sigrún Ósk said...

Sjííííí, hvað ég skil þig vel! En komasvoooo, þetta er að verða búið!

En trúðu mér, þú átt eftir að vera laaaangsætust á útskriftinni. Alveg merkilegt hvað maður verður sætur bara af að vera glaður ;)

 
At 12:14 PM, Anonymous Anonymous said...

Úff.. svo er stundum svo erfitt þegar svona lítið er eftir. Þá vill maður bara að það sé búið. Ekki síður þegar námsefni heillar EKKI!! :D

Sendi þér þá aukaorku sem ég á til alla önnina ... Koma svo Ásta, þú getur þetta!

Frúin :)

 
At 4:09 PM, Blogger Ásta said...

Takk stelpur! Mér líður mun betur núna, orkan er að koma aftur og ég fór meira að segja út að hlaupa á laugardaginn;) 4 mánuðir eftir, þvílík sæla!

 

Post a Comment

<< Home