Ég verð hreinlega þunglynd af að lesa mbl þessa dagana. Er allt að fara til andskotans? Krónan er að fara til helvítis, ljósmæður eru komnar með hærri laun en unglæknar, og glæpastarfsemin er að eyðileggja landið.
Aðalfréttir dagsins eru þær að trúlofunarhringurinn minn er strax kominn í viðgerð. Einn steinninn var að detta úr. Og Kristina kúkaði í koppinn í kvöld.

4 Comments:
Veistu ég hlusta sem minnst á þetta "krepputal" þó hann frændi þinn sé á bólakafi í þessu. Talar um fátt annað!! Nóg heyri ég samt, þó ég forðist þetta. En ég geri mér grein fyrir alvöru lífsins, en ég þarf ekkert að velta mér upp úr daglegri sveiflu sem er breytilegri en blóðsykurinn hjá mér (sem rokkar ansi mikið daglega hehe)
Gangi ykkur vel síðustu önnina, þrátt fyrir allt þetta vesen á ykkur. Þetta hlýtur að taka enda svo þú hafir tíma til að læra!! Og þið bæði náttúrulega.
Helga Dröfn
Ok ok, ég skal ekki vera svona þunglyndisleg;) En þú ert nýgift og hamingjusöm, það er ekkert að marka þig! hehe
slepptu því þá að lesa mbl;) svo verður hringurinn stórglæsilegur þegar hann kemur tilbaka:) skil samt vel að þú sért ekki sátt.
Aldeilis dugleg hún Kristina:) já þær eru oft búnar að vera voða samtaka með hlutina, frekar skondið:) Karen er einmitt voða mikið að æfa sig að reyna að hoppa.og er voða dugleg að klappa fyrir pabba sínum sem hrós. þær verða að hittast einhverntímann Kskvísurnar!
Þunglyndið er farið;)
Já það væri gaman!:) Við flytjum heim í febrúar, þú verður að segja til þegar þið verðið á landinu, þá reynum við að hittast!
Post a Comment
<< Home