Fyrir ömmu
Ég átti góðan dag! Í morgun vöknuðum við öll kl.6.30 og borðuðum hafragraut saman áður en ég keyrði Kristinu í leikskólann og Jákup í vinnuna. Eftir það brunuðum við Íris til Odense þar sem við skelltum okkur í klippingu og litun hjá frænku hennar Halldísar. Ég er að missa allt hár og lét hana því klippa á mig topp og lita dökkt :) Svo fórum við í heimsókn til Minna vinkonu, en hún á tvo stráka á svipuðum aldri og stelpurnar mínar. Emil er 7 mánuðum eldri en Kristina, og Villads er 2,5 mánuðum yngri en Íris. Íris var mjög hrifin af Emil, eins og sést á myndinni!
Þegar við komum heim kl.18 var Kristina svakalega ánægð að sjá okkur, og alls ekki sofnuð eins og ég var búin að sjá fyrir mér. Hún vildi fá okkur til þess að leika við sig, sem og við gerðum öll sömul, henni til mikillar ánægðu. Við slógum upp allsherjar teboði á gólfinu með teppi, bollum og diskum, og var boðið uppá hafragraut a la Kristina :) Hún ljómaði alveg hreint og hljóp fram og tilbaka til þess að bæta við matseðilinn og ná í drykkjarföng handa gestunum. Svo lásum við bók og sungum nokkur lög, kysstum og knúsuðumst og hún sofnaði því eins og skot afar hamingjusöm :) Skrítið hvernig það bærast með manni blendnar tilfinningar við svona stundir, þar sem á sama tíma og ég er ánægð að hún skuli vera svona glöð fæ samviskubit yfir að geta ekki gert það á hverjum degi..? Eins og það þarf lítið til þess að gleðja þetta litla hjarta!
Eitt sem hún sagði í dag vakti líka með okkur spurningar. Hún sagði nokkrum sinnum "jeg gider ikke lege med dig". Við höfum aldrei heyrt hana segja þetta áður, og fórum að hugsa hvort hún hefði heyrt þetta frá einhverjum í dag? Alveg óþolandi tilhugsun, að einhver sé kannski að segja þetta við hana í leikskólanum..:(

4 Comments:
úúúúú mega skvís, fer þér ekkert smá vel:) það sem maður getur ekki átt yndislegar stundir með þessum börnum og vá hvað maður er mikill meistari í að fá samviskubit eða fá illt í hjartað þegar maður er foreldri!
Flott nýja lúkkid thitt;)
Fjóla: Já það er sko satt. Ég held hreinlega stundum að það sé 50/50, samviskubitið og áhyggjurnar/hamingja!
Báðar: Takk :D
Rosa fín greiðsla :)
Helga Dröfn
Post a Comment
<< Home