Saturday, January 23, 2010

Laugardagur til leti



Laugardagur til einskis...ussss. Í dag er fyrsti dagurinn sem Jákup er í fríi síðan við komum heim frá Íslandi. Ég spurði hann í gær hvað við ættum að gera í dag, og hann nennti ekki að taka afstöðu. Svo horfði hann á sjónvarp til kl.2.30 í nótt. Þegar Kristina vaknaði kl.6 í morgun var ég alveg handónýt af þreytu og tókst að lúra aðeins áfram með því að kveikja á barnaefninu inni í herbergi, en við fórum svo á fætur kl.7.30 með Írisi og Jákup fékk að sofa áfram. Ég fékk svo að skreppa í ræktina í morgun, og hann varð því að fara á fætur rúmlega 9. En svo var hann þreyttur eftir hádegismat og lagði sig, Íris var ómöguleg og ég varð að syngja hana í svefn, og Kristina er búin að vera afundin í allan dag. Við lékum lengi við að klæða allar dúkkurnar hennar og láta þær pissa í koppinn og fara að sofa. Þegar Jákup loksins kom aftur á fætur, og fór að gera allt klárt til að fara með Kristinu í sund, var hún sofnuð á sófanum :( Og sefur enn... Þannig að hann skrapp bara á haugana með rusl. Þar fór sá dagur. Hann er að vinna á morgun, þannig að við mæðgur verðum bara að skreppa út að leika og í göngutúr. Ég var bara að vonast til að geta gert eitthvað í dag sem ég get ekki ein með báðar stelpurnar, eins og sund.

Anyways, ég fór í ræktina í morgun í fyrsta sinn, og skellti mér á hlaupabrettið í fyrsta sinn í heilt ár! Ég hljóp engu að síður 4km eins og ekkert hefði í skorist og er hæstánægð með það :) En djöfull er maður alltaf laskaður fyrstu dagana þegar maður byrjar í ræktinni! Eina vonin er að ég veit hvað maður verður fullur af orku eftir nokkra daga :) Nú á að taka á því í spinning aftur. Úje.
Er líka búin að taka mig á í matarræðinu og búin að ná af mér fyrsta 1,5 kílóinu á einni viku. Held ótrauð áfram.

Íris Lilja fær sennilega brún augu, því augun hennar eru miklu dekkri en þau voru á Kristinu á sama aldri, og frá sumum sjónarhornum virðist innsti hringurinn vera orðinn brúnleitur. Mér finnst þetta alveg heillandi að sjá :) Hún stækkar vel, og sundhedsplejersken var hérna í gær að mæla og vigta. Hún varð 4ja mánaða á miðvikudaginn. Hún mældist 64cm og 6900g, með höfuðmál 43cm. Sem er mjög svipað tölunum hennar Kristinu á sama aldri, nema að Íris er alltaf 100-200g léttari.

Það er nóg að gera framundan: Næstu helgi keyrum við til Aalborg að heimsækja Svanhild og Martin og börn, og gistum eina nótt. Laugardagsmorgun tökum við ferjuna til Noregs að heimsækja Huldu Birnu og Guðjón og börn, og verðum fram á mánudag.
2 vikum seinna ætlum við í sumarbústað með Lene og Simon yfir helgi. Og svo verður ferð til Hjörring ofarlega á dagskrá þegar tækifæri býðst, að heimsækja Siggu, Stinna og stelpurnar :) Jákup byrjar að vinna hjá heimilislækni 1.mars og þá verður hann meira en gestur mánaðarins á heimilinu :)

En andskotans snjór, ég er orðin vel þreytt á honum! Þessi snjór og skítakuldi má bara alveg fara að hverfa, svo ég geti komist út að hlaupa, og labba með vagninn!

3 Comments:

At 6:47 PM, Blogger Unknown said...

Svo mikið pirr þegar svona dagar enda í að maður gerir ekkert.
Ein aldeilis dugleg í átakinu, flott hjá þér.
Og greinilega spennandi tímar framundan hjá ykkur:)
xx

 
At 12:59 PM, Blogger Ásta said...

Takk fyrir innlitið :)

 
At 12:48 PM, Anonymous Anonymous said...

ohhh hvað ég skil svona "ónýta" daga. Og við snúumst bara í kringum okkur sjálf....

En ég er alltaf að biðja um snjóinn hingað heim - gengur eitthvað illa!!

Rembist áfram, vonandi kemur hann hingað svo þú losnir við hann og getir farið út að hlaupa :D

Kv. Helga Dröfn

 

Post a Comment

<< Home