Thursday, November 11, 2004

Teddi gleuraugnaglámur

Já, nýjustu fréttir eru sko þær að Teddi litli frændi er kominn með gleraugu tveggja og hálfs mánaða gamall!!:) Kíkiði á www.andmenning.com! Algjört krútt, ég get ekki beðið eftir að sjá hann...
Nú eru ekki nema 4 dagar þangað til ég fer í klinik á spítalanum í fyrsta skipti, nú vona ég bara að sjúklingarnir komi í hrönnum með afslitna útlimi:) Nei, ég vona bara að ég verði mér ekki til skammar og detti ekki niður í opin sárin á greyjunum í miðri aðgerð! Það er víst ekki svo óalgengt þegar læknanemarnir eru að reyna að þrauka út ónotindin en verða að láta í minni pokann.....hehehe Við erum búin að stinga í handarbökin á hverju öðru síðustu daga til að æfa okkur í að setja upp æðaleggi og ég lít út eins og versti dópisti!
Svo var ég að vinna í gærkveldi og passaði alveg kolvitlausan kall sem var að vakna eftir aðgerð og vildi bara fara heim, með alls konar slöngur í sér og allur brotinn og bramlaður. Ég var búin að hafa mig alla við við að halda honum í rúminu og hindra hann í að rífa allar slöngur af sér án þess að vera lamin fyrir það. Þá þurfti ég á klósettið og fékk hjúkku til að leysa mig aðeins af, nema hvað að kallinn tók sig til og nefbraut greyið konuna á meðan ég pissaði!! Það var greinilega það sem þurfti til, því að þá var hann sendur aftur niður á gjörgæslu og svæfður!! Ég get ekki sagt annað en að ég var fegin:) Hehe

2 Comments:

At 2:01 PM, Blogger herborg said...

Hann er nú meira krúttið hann Teddi litli. Voða spekingslegur;)

 
At 9:50 AM, Blogger Ásta said...

Já, hann er krútt:)

 

Post a Comment

<< Home