Heim í rigningu
Jæja, þá erum við komin heim frá Kýpur og farin að læra aftur fyrir síðasta prófið í sumar. Það var æðislegt á Kýpur og við hefðum alveg verið til í að vera í viku í viðbót. Við fórum m.a. í risastórt vatnsland með fullt af vatsrennibrautum. Þar vorum við alveg í essinu okkar! Við keyptum okkur líka ferð með bát þar sem maður fær að fara í fallhlíf á eftir bátnum, fleiri fleiri metra yfir sjónum. Það var miklu afslappaðara en það leit út, við svifum bara uppi í loftinu í þvílíku logni og kyrrheitum. Ég held að ég hafi læknast svolítið af lofthræðslu minni sem ég öðlaðist í tivoli hér um árið í "the golden tower" ef það er einhver sem veit hvaða tæki það er:) Við vorum orðin ansi sólbrennd á tímabili, þannig að við skelltum okkur í rútuferð á afmælisdaginn minn og sáum nokkra litla bæi uppi í fjöllunum. Það var virkilega fróðlegt og skemmtilegt, nema hvað ég var orðin svo illa stungin af moskitoflugum daginn áður, og þurfti að fá lyf (antihistamin) við því frá lækninum, þar sem ég er með mikið ofnæmi fyrir moskitoflugum, og ég varð svona líka syfjuð af þessum lyfum að ég svaf nánast allan túrinn! En við fórum m.a. í lítinn bæ sem hefur ekki breyst síðustu 200 ár, nema að þau fengu rafmagn fyrir 5 árum. Þar búa í dag 5 manneskjur, sá yngsti er 75 ára og er bæjarstjóri, og sú elsta er 96 ára. Þau neita af flytja, því þau vilja deyja þar sem þau fæddust.
Við kynntumst dönsku pari í flugvélinni á leiðinni út, Karina og Søren, sem við eyddum talsverðum tíma með þessa viku. Það var mjög gaman að vera fleiri þegar við fórum í vatnsgarðinn og þess háttar. Þau fóru líka með okkur út að borða á afmælinu mínu og á djammið. Þau töluðu svo rosalega jósku að það tók mig fyrstu tvo dagana að skilja allt sem þau sögðu!
Út í allt aðra sálma. Ég fékk óvænta afmælisgjöf þetta árið....einkunnin okkar fyrir síðasta prófið kom á afmælisdaginn minn, og ég fékk 10. Það svarar til ca.9 á íslenskum einkunnaskala. Það kom mér alveg að óvörum, því ég var jú ekki búin að lesa allt sem var og kom til prófs. Mig dreymdi m.a.s. fyrstu dagana á eftir að háskólinn hefði gert mistök og að ég hefði alls ekki fengið svona góða einkunn:) Ég er búin að tjekka í tvígang og þetta passar allt saman:) Þá er eins gott að ég nái þessu síðasta prófi! Hehehe....
Hér í Danmörku er búið að rigna síðan um miðjan júní, og enn er alskýjað, þannig að ef ég vill halda þessum lit sem ég fékk, þá verð ég að fara í ljós! Það er aldrei að vita nema að ég fari á eftir....Jákup er að fara að vinna og ég er ein heima í allt kvöld hvort eð er. Best að fara að læra!

4 Comments:
Ég man eftir "the golden tower", þar er ágætis tæki :)
Gaman að heyra að það hafi verið gaman hjá ykkur, og til hamingju með einkuninna, það hlaut að vera einhver snilld í ættinni!
Ég sá það í kvöldfréttum að það væri búið að vera sérlega gott veður á Íslandi undanfarið, en þar sem ég vinn í Kringlunni sé ég aldrei slíkt með eigin augum :Þ
KT
ekki spes veður í danmörku í sumar;)!!
annars til hamingju með afmælið um daginn!!!
ég skrifaði kommentið að ofan
Herborg
Já, takk sömuleiðis!!:) Nú skín sólin reyndar, veit ekki hversu lengi það varir! Annars er þetta hið besta veður til að vinna mikið og lesa fyrir próf, þannig að ég er svo sem alveg sátt:) Hehehe
Post a Comment
<< Home