Monday, June 14, 2004

Top model

Ég er búin að horfa á hvern einasta þátt af Americas Next Top Model síðustu vikurnar, og hef látið Jakob taka upp síðustu 5 mínúturnar fyrir mig ef ég hef ekki náð að sjá það vegna vaktaskipta þegar ég er að vinna, og nú er það búið! Oh ég er svo auðkeypt(bad dobby!). Þessir þættir hafa pottþétt verið hannaðir fyrir svona vitleysinga eins og mig! Hvernig getur maður (ég) tapað sér svona yfir modelkeppni milli tíu 18 ára stelpna???! Ég hef meira að segja staðið sjálfa mig að því að fara næstum að grenja yfir því að einhver hafi verið valin frá! Stupid! En það var sem sagt lokaþáttur í kvöld, og hann var mjög spennandi. Ég hélt samt með stelpunni sem lenti í öðru sæti. Djöfull hlýtur að vera ömurlegt að vera valin frá í síðasta kutti, þegar maður er svona nálægt takmarkinu! Þá myndi ég heldur vilja vera valin frá fyrr...eða kannski ekki....hún fær örugglega einhvern samning samt.
Bara smá hugleiðingar hér handan við atlantshafið (heitir það ekki það á íslensku?? -verð að fara að lesa íslenskar bækur aftur, stafsetningin mín og orðaforði þjáist hryllilega, hefði betur verið öfugt í menntó! Þá hefði maður kannski skorað betri einkunn í dönsku á stúdentsprófi!) Crazy dweep going to bed.

5 Comments:

At 12:10 AM, Anonymous Anonymous said...

Jæja, verð að sýna það og sanna að ég hafi kíkt á bloggið svo þú haldir ekki að ég sé algjör auli - ja auli og ekki auli, heldurðu að ég hafi ekki dottið inn í þátt sem kallast "Paradise Hotel" - mesta þvæla sem ég hef séð - en varð samt húkkt...þannig þú ert ekki ein... kv. Erna

 
At 6:49 PM, Blogger Ásta said...

Já, það er verið að sýna þann þátt hér líka. Mér finnst ótrúlega fyndið hvað þeir gera þessa þætti dramatíska! Þegar þau þurfa að taka einhverja ákvörðun þá eru þau að taka "the biggest decision of their life"!! Og þetta er eitthvað skíta program sem þau taka þátt í í eina viku af lífi sínu!:) GET A LIFE!

 
At 11:56 PM, Anonymous Anonymous said...

Almáttugur, ég sá einn þátt af þessari seríu einhvern tímann fyrir tilviljun, mér fannst þetta drepfyndið. Ég HATA raunveruleikasjónvarp, mér finnst það mesti sori sem nokkurn tímann hefur komið nálægt sjónvarpi ever. Hehe... Ég er líka nánast hætt að horfa á sjónvarp yfir höfuð. :) En ég er kannski bara skrýtin.

Hefurðu einhvern aðgang að íslenskum bókum þarna úti? Þyrftirðu ekki að láta senda þér einhverjar bækur?

 
At 11:56 PM, Anonymous Anonymous said...

Úpps!! Ég gleymdi aftur að taka fram hver ég er! *roðn*

Dóra!

 
At 11:47 PM, Blogger Ásta said...

Ég er með eina bók í gangi sem ég fékk lánaða frá Ásgeiri, klára hana næstu daga. Hann er líka nýbúinn að fá DaVinci leyndarmálin eða hvað hún nú heitir, ég ætla að stela henni um leið og hann er búinn með hana, muhahaha... Annars þá held ég að ég lifi af þangað til ég kem heim:) Takk samt! Ég á líka eftir að læra fyrir eitt próf í viðbót:) Auk þess er það algjört morð að senda eitthvað til Danmerkur, það kostar jafn mikið og innihaldið. Don´t worry;)

 

Post a Comment

<< Home