Jæja, síðasta próf á morgun! Og svo get ég farið að þrífa!!:) Það sem ég þoli allra verst við próftímabil, er að íbúðin breytist alltaf í algjöra svínastíu og ég verð bara að reyna að þola það í staðinn fyrir að missa mig í hreingerningunum! En á morgun get ég með góðri samvisku þrifið og þrifið og þrifið og..... en ég geri það ekki á morgun! Ég ætla fyrst á djammið!!! jíha! Svo ætla ég að hjálpa Jakob með allrasíðasta prófið og svo er ég skráð í vinnu alla næstu viku.
Það fer líka að styttast í afmælið mitt!:) Ég verð víst ekki ein á afmælinu mínu í ár, jei!:) Jakob var að velta því fyrir sér að fara til Færeyja að vinna í sumar en hann ákvað að vera hjá mér í staðinn, þessi elska. Enda stórar líkur á að hann þurfi að fara í endurtektarpróf í ágúst eins og ég:)

0 Comments:
Post a Comment
<< Home