Saturday, June 12, 2004

EM

Já gott fólk, EM er byrjað! Það er ekki nóg með að ég eigi erfitt með að halda einbeitingunni að lestrinum vegna sólskins og 22 stiga hita, heldur eru þeir líka byrjaðir ad keppa í EM og þess vegna verður ekki húsfriður næstu 3 vikurnar fyrir illa lyktandi hrópandi karlmönnum í stofunni! Og fagnaðurinn er byrjaður inni í stofu (eða á ég að segja mótmælishrópin/-andvörpin, því hver maður með viti veit ad fótbolti gengur ekki út á að hitta á markið, heldur að hitta framhjá og missa sig í geðsveiflum af þeim völdum!) Því miður eigum við það stórt sjónvarp að stofan mín verður iðulega að samkomustað þessara vesalinga þegar mikilvægir eða minna mikilvægir leikir eru spilaðir.

Ég á auðvitað að vera á bókasafninu að læra, en ég nennti ekki af stað í morgun af því að ég var ein heima hvort eð er, og á erfitt með að koma mér þangað eftir hádegi. Þá finnst mér það einhvern veginn ekki borga sig;) Við erum annars að fara í bíó í kvöld med Rúni og Soley (færeyingar) að sjá Harry Potter 3! Það er mikil eftirvænting hér á bæ!:) Ég gaf Jakob fyrstu 4 bækurnar í fyrra, og hann sem aldrei hafði lesið heila bók óneyddur, las þær allar í akkorði! Hann gaf mér svo bók nr.5 í afmælisgjöf í fyrra svo að ég hefði eitthvað að gera á afmælinu mínu, af því að hann var þá farinn heim til Færeyja. En ég var auðvitað búin með bókina áður en sá dagur rann upp, hehe.
Leikurinn er byrjaður aftur, ætli ég kíki ekki aðeins....:)

3 Comments:

At 12:24 AM, Anonymous Anonymous said...

Bara ad tjekka, var ad heyra ad thad væri eitthvad vesen ad kommenta hjá mér. Ef thid erud ekki sjálf bloggarar thá veljid thid bara ad kommenta sem anonymous. Munid bara ad skrifa nafnid ykkar nedst!:)
-Ásta

 
At 12:39 AM, Blogger herborg said...

Stuð hjá þér;) Ég er nú á leiðinni á EM;)!!hehe

Gangi þér vel að lesa og njóttu svo lífsins þegar þú verður loksins búin!

Heyrumst;)

 
At 3:43 PM, Blogger Ásta said...

Thanks! Skemmtu thér vel! Ég kíki eftir thér thegar ég horfi á boltann:) Thid ætlid væntanlega á leiki sem spiladir eru í Faro? Sko, svona er ég vel inni í thessu thrátt fyrir kvart og kvein;) hehe

 

Post a Comment

<< Home