Monday, October 18, 2004

Jólaferð

Mér tókst loksins að panta miða heim til Íslands fyrir jólin, eftir svona eins og 6 tilraunir. Tölvan mín var eitthvað á móti því að ég færi heim, og fraus í miðri pöntun eða lokaði nettengingunni. Ég vona að þetta sé ekki tákn fyrir lélegri ferð! Sjö níu þrettán. Svo ætlaði ég auðvitað að styðja iceland express eins og alltaf, til að halda uppi samkeppninni, nema hvað....þegar ég ætlaði að gera enn eina tilraunina til að panta ferð, þá var ódýri farmiðinn heim þann 31.des uppseldur! Þannig að ég neyddist til að kaupa ódýrari farmiða hjá erkióvininum icelandair. Langt síðan ég hef flogið með þeim! Alla veganna þá hlakka ég til að koma heim. Ég kem sem sagt 18.des. Í fyrsta skipti í mörg ár er ég í algjöru jólafríi og ætla að baka piparkökur og skreyta jólatré! jibbí!!

Helgin 5.-7.nóv er nú þegar frátekin til Kaupmannahafnarferðar til að hitta matarklúbbinn ógurlega úr menntó. Það er nú ekki langt síðan síðast, en í þetta skiptið er það hún Arndís skvísa sem ætlar að leggja land undir fót og heimsækja okkur föðurlandssvikarana til Danaveldis. Anna Sigga kemur frá Svíþjóð að vanda, og ég frá Odense, og Herborg ætlar að vera gestgjafi. Nú á aldeilis að versla sér vetrarföt og slúðra um gamla daga! Þess má geta að hún Dagmar, sem einnig er heiðvirtur félagi þessa merka félags, varð mamma síðustu helgi, 10.10, á afmælisdaginn hennar mömmu minnar, og átti lítinn prins. Til hamingju með það!:)
Ég ætla að láta þetta duga í bili, ég kannski fæ Herborgu til að skella eins og einum eða tveimur linkum inn á þessa forláta síðu við þetta sama tækifæri. Hún verður nú ánægð með að fá að halda lífi í þessari síðu fyrir mig eins og hún kvartar greyið:) hehe Hún vill endilega sjá nafnið sitt hérna!!

7 Comments:

At 6:13 PM, Blogger arndis said...

Hlakkar ekkert smá til að hitta ykkur! Er Dagmar komin með síðu á barnalandi?

 
At 7:22 PM, Blogger Ásta said...

Nei, ég held ekki, hún ætlaði að láta vita þegar síðan væri komin! Hlakka til að sjá þig!:)

 
At 3:49 PM, Anonymous Anonymous said...

Ásta frænka!

sendu mér emailið þitt, ég er með smá tilboð handa þér... sendu það á sural@simnet.is..

kveðja, Lalli litli

 
At 10:58 PM, Blogger herborg said...

ég fæ mikið kikk út úr því að hafa link á mig á sem flestum stöðum þannig að ég skal með glöðu geði gera þetta fyrir þig ef þú hristir kokteil fyrir mig á meðan;) hehehe

 
At 1:54 AM, Anonymous Anonymous said...

Skammar mig fyrir að update-a aldrei en update-ar svo aldrei sjálf?!

Skamm skamm!!

 
At 1:32 PM, Anonymous Anonymous said...

Eg skil fyrr en skellur... Thad er greinilega ekki minnst a alla sem ætlunin er ad hitta i Kaupmannahøfn. Sumir eitthvad merkilegri en adrir, hehe. Hlakka til ad sja thig kerling :-)

Kvedja,
Sigrun Osk

 
At 5:48 PM, Blogger Ásta said...

Memememe (med fidlunni á handleggnum!)

 

Post a Comment

<< Home